Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fjórða ársfjórðungs fyrir árið 2018 eftir lokun markaða fimmtudaginn 7. mars n.k.
Opinn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 8. mars n.k. klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00.
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.