Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar á aðalfundi 12. mars

Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn þann 12. mars 2019 kl. 15.00 á Hótel Reykjavík Natura, þingsal 2.

Meðfylgjandi er endanleg dagskrá aðalfundarins og tillögur þær sem lagðar verða fyrir fundinn en engar breytingar hafa orðið frá áður birtri dagskrá og tillögum.

Framboðsfrestur til stjórnar félagsins er nú runninn út samkvæmt samþykktum félagsins og hafa eftirtaldir aðilar gefið kost á sér í stjórn félagsins:

Kristinn Albertsson
Martha Eiríksdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Thomas Möller
Þórarinn V. Þórarinsson

Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Þar sem stjórn félagsins skal skipuð fimm einstaklingum er ljóst að framangreindir aðilar eru sjálfkjörnir til setu í stjórn félagsins á aðalfundinum án sérstakrar atkvæðagreiðslu.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í viðhengi. 

Viðhengi