Landsbankinn hf.: Tilkynning um frestun aðalfundar Landsbankans


Á fundi bankaráðs Landsbankans hf. 6. mars 2019 var ákveðið að fresta aðalfundi bankans, sem vera átti miðvikudaginn 20. mars 2019, þar sem ekki hefur gefist nægur tími til að ganga frá endanlegum tillögum fyrir fundinn. Ákveðið var að halda aðalfundinn fimmtudaginn 4. apríl 2019. Boðað verður til fundarins með auglýsingu í samræmi við lög og samþykktir bankans.

Nánari upplýsingar veita:
Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is      
Hanna K. Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is