Icelandair Group hefur gengið frá samningi um lán að fjárhæð 80 milljónir bandaríkjadala við innlenda lánastofnun. Samhliða verða tíu Boeing 757 flugvélar í eigu félagsins settar að veði til tryggingar greiðslu lánsins. Lánstími er til fimm ára. Gert er ráð fyrir að lánsfjárhæðin verði nýtt sem hlutagreiðsla inn á útgefin skuldabréf félagsins.
Frekari upplýsingar veitir:
Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála
Sími: 5050300
Netfang: evasoley@icelandair.is