Undirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði


Fjármálaráðherra felur Lánamálum ríkisins hjá Seðlabanka Íslands að gera samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði.

Innlendir aðilar sem hafa starfsleyfi í samræmi við 1-2. tl. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, hafa eigið fé að lágmarki 10 milljónir evra (EUR) og hafa nauðsynlegan búnað til þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa, geta óskað eftir því að gerast aðilar að samningunum.

Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum þar sem markflokkar ríkisverðbréfa eru boðnir til kaups eða sölu. Einnig fá þeir aðgang að verðbréfalánum ríkisverðbréfa í samræmi við reglur og skilmála.

Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á markflokkum ríkisverðbréfa. Aðalmiðlurum er skylt að setja fram tiltekna lágmarksfjárhæð kaup- og sölutilboða í hvern markflokk ríkisbréfa með hliðsjón af hámarksmun sem tilgreindur er í samningunum.

Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af samningi í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Þeir aðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru beðnir að mæta til undirritunar samninga klukkan 16:00 fimmtudaginn 14. mars 2019 í húsakynnum Seðlabanka Íslands að Kalkofnsvegi 1.

Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson forstöðumaður hjá Lánamálum ríkisins í síma 569 9600.

Viðhengi


Attachments

fréttatilkynning fyrir undirritun 2019 Aðalmiðlarasamningur_sýnishorn