Festi hf.: Endanleg dagskrá aðalfundar 2019


Aðalfundur Festi hf. verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 2019 klukkan 10:00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi.

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
  2. Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
  3. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins.
  4. Ákvörðun tekin um greiðslu arðs vegna rekstrarársins 2018.
  5. Tilnefningarnefnd kynnir skýrslu sína og tillögur.
  6. Stjórnarkjör.
  7. Tillaga stjórnar um skipun tveggja einstaklinga í tilnefningarnefnd.
  8. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfirma.
  9. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar.
  10. Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu félagsins.
  11. Tillaga tilnefningarnefndar um breytingar á starfsreglum nefndarinnar.
  12. Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
  13. Önnur mál löglega upp borin.

Nánari upplýsingar er að finna í viðhengi ásamt ásamt tillögu tilnefningarnefndar Festi hf. um breytingar á starfsreglum nefndarinnar en jafnframt er vísað til fyrri tilkynninga um fundinn.


Attachments

Festi hf - Aðalfundarboð 2019_endanlegar tillögur Tillaga tilnefningarnefndar Festi hf. um breytingar á starfsreglum