Ársreikningur Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2018 sýnir að fjárhagur fyrirtækisins er traustur og afkoma trygg, þrátt fyrir sveiflur í ytri skilyrðum. Þar er lykilatriði góð tök á rekstrarkostnaði en tekjur jukust á árinu með aukinni orkuvinnslu og vaxandi notkun veituþjónustunnar. Rekstrartekjur jukust um 5,2% frá árinu 2017. Rekstrarkostnaður jókst um 0,1%. Rekstrarhagnaður óx milli áranna 2017 og 2018 um rúman einn milljarð króna.
Ársreikningur samstæðu OR var samþykktur af stjórn í dag. Jafnframt samþykkti stjórn að leggja til við aðalfund OR að eigendur fyrirtækisins – Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð – fái greiddan arð sem nemur 1.500 milljónum króna vegna rekstrarársins. Ársskýrsla OR er jafnframt gefin út í dag. Þar er með skipulegum og gegnsæjum hætti gerð grein fyrir umhverfisþáttum starfseminnar árið 2018, loftslagsáhrifum, samfélagsþáttum, stjórnháttum og fjármálum á árinu.
Smelltu hér til að sjá Ársskýrslu OR 2018
Meira en 100 milljón rúmmetrar af heitu vatni
Kalt og úrkomusamt ár á helsta starfssvæði Orkuveitu Reykjavíkur hafði þau áhrif að vinnsla á köldu vatni, sem meðal annars er nýtt til að vökva garða, minnkaði en í fyrsta skipti fór heitavatnsvinnsla yfir 100 milljón rúmmetra. Framundan eru talsverðar fjárfestingar til að mæta þörf fyrir meira vatn til húshitunar og til að tryggja heilnæmi neysluvatns úr Heiðmörk. Uppbygging nýs húsnæðis er mikil, ferðamönnum fjölgaði og viðskiptavinum á samkeppnismörkuðum sömuleiðis. Þá er sífellt betra jafnvægi að nást milli orkuvinnslu í Hellisheiðarvirkjun og afkasta jarðhitasvæðanna sem hún nýtir og jókst orkuvinnsla þar á árinu. Aukin vinnsla og aukin eftirspurn eftir þjónustu fyrirtækjanna innan OR-samstæðunnar – Veitna, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu Reykjavíkur – skilar vaxandi tekjum milli ára. Álverð lækkaði og ræður það mestu um að reiknaðar stærðir ársreikningsins voru óhagstæðar. Engu að síður var heildarniðurstaða ársins jákvæð sem nemur tæpum sex milljörðum króna. Það er veruleg lækkun frá fyrra ári þegar þróun álverðs var hagstæð.
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR
Enn á ný sjáum við traust tök á rekstri Orkuveitusamstæðunnar skila fyrirtækjunum góðri afkomu. Sú menning sem hér hefur skapast – að velta fyrir sér hverri krónu áður en henni er ráðstafað – er á meðal þeirra verðmæta sem Orkuveita Reykjavíkur býr að. Ytri skilyrði breytast án þess að við fáum um þau ráðið. Markviss vinna að áhættuvörnum leyfir okkur þó að leggja þennan ársreikning fyrir eigendur fyrirtækisins með nokkru stolti.
Hér eftir sem hingað til munu viðskiptavinir njóta þess þegar vel tekst til með reksturinn. Samkvæmt ákvörðun þeirra sveitarfélaga sem eiga Orkuveitu Reykjavíkur munu viðskiptavinir njóta ábatans af rekstrinum og verð á margri okkar þjónustu hefur lækkað ítrekað eða staðið í stað síðustu misseri. Ef okkur lánast að viðhalda þeirri skörpu sýn sem við höfum haft á rekstrarútgjöldin verður sú þróun, að öðru jöfnu, viðvarandi.
Uppgjör okkar fyrir árið 2018 snýst um fleira en fjárhaginn. Við leggjum spilin á borðið varðandi ábyrgð okkar í samfélaginu og umhverfinu í Ársskýrslu OR 2018. Tilgangur skýrslunnar er ekki síst að vera grundvöllur umræðu um á hvaða sviðum við þurfum að standa okkur betur.
OR og Heimsmarkmiðin
Ársskýrsla OR 2018 er samþætt skýrsla, skráð eftir alþjóðlegum viðmiðum sem þróuð hafa verið í samvinnu kauphalla og Sameinuðu þjóðanna. Þar er gerð grein fyrir loftslagsáhrifum starfsemi OR og dótturfyrirtækjanna, öðrum umhverfisáhrifum rekstursins, stjórnháttum innan samstæðunnar og margvíslegum samfélagsþáttum. Ársskýrsla OR 2018 er einungis rafræn.
Yfirlit stjórnenda
2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | |
Fjárhæðir í milljónum króna | ||||||
Rekstrartekjur | 39.209 | 38.526 | 40.357 | 41.423 | 43.666 | 45.916 |
Rekstrarkostnaður | (13.126) | (13.681) | (15.183) | (16.062) | (17.285) | (17.299) |
EBITDA | 26.084 | 24.845 | 25.174 | 25.361 | 26.380 | 28.617 |
Afskriftir | (8.927) | (9.152) | (10.747) | (10.392) | (9.063) | (10.271) |
Rekstrarhagnaður (EBIT) | 17.157 | 15.693 | 14.428 | 14.968 | 17.318 | 18.346 |
Reiknaður tekjuskattur tímabilsins | (7.572) | (2.004) | 587 | (4.702) | (5.328) | 1.380 |
Afkoma tímabilsins | 3.350 | 8.871 | 4.176 | 13.352 | 16.072 | 5.978 |
Aðrir rekstrarvísar | ||||||
Bein losun CO2-ígilda – Umfang 1 (tonn) | 60.280 | 55.982 | 52.045 | 43.903 | 40.386 | 43.509 |
Hreinsun og binding brennisteinsvetnis frá Hellisheiðarvirkjun (%) | 0% | 13% | 26% | 47% | 68% | 75% |
Raforkuvinnsla (gígavattstundir) | 3.422 | 3.443 | 3.249 | 3.411 | 3.473 | 3.507 |
Heitavatnsvinnsla (milljónir m3) | 92 | 90 | 95 | 91 | 94 | 102 |
Neysluvatnsvinnsla (milljónir m3) | 27 | 29 | 29 | 30 | 29 | 28 |
Kynbundinn launamunur | 4,6% | 3,7% | 2,3% | 2,1% | (0,3%) | (0,0%) |
Konur meðal stjórnenda | 37% | 44% | 47% | 49% | 51% | 54% |
Nánari upplýsingar:
Bjarni Bjarnason
Forstjóri
516 6100
Viðhengi