FÍ fasteignafélag slhf. - Aðalfundur 2019


Aðalfundur FÍ fasteignafélags slhf. verður haldinn mánudaginn 8. apríl 2019, kl. 9:00 í fundarsal Kviku banka, Borgartúni 25, 8. hæð, Reykjavík.  

Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2018 lagður fram til staðfestingar.
  3. Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins fyrir árið 2018.
  4. Ákvörðun um þóknun til stjórnar félagsins.
  5. Ákvörðun um þóknun til fjárfestingaráðs félagsins.
  6. Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.
  7. Kosning fjárfestingaráðs félagsins.
  8. Kjör endurskoðanda.
  9. Samantekt stjórnar um hlutafjáreign og samstæðutengsl.
  10. Tillaga um starfskjarastefnu.
  11. Önnur mál.

Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FÍ, Sveinn Hreinsson s. 5403290, sveinn@fifasteignir.is