Heimavellir hf. - Nýr framkvæmdastjóri


Arnar Gauti Reynisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Heimavalla hf.

Gauti hefur verið fjármálastjóri Heimavalla frá maí 2015 og er iðnaðrverkfræðingur frá University of Minnesota og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Gauti hefur verið einn af þremur stjórnendum Heimavalla og tekið virkan þátt í uppbyggingu félagsins á síðastliðnum 4 árum. Áður en Gauti hóf störf hjá Heimavöllum starfaði hann sem sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Íslandsbanka.

Gauti mun taka við starfinu 1. apríl 2019.

"Ég er mjög spenntur að taka þátt í þeirri vegferð sem framundan er hjá Heimvöllum. Félagið hefur stækkað hratt á undanförnum árum og er stærsta íbúðaleigufélag landsins með um 1.800 íbúðir í leigu. Á næstunni verður enn frekari áhersla lögð á umbreytingu eignasafns félagins sem miðar af því að bæta rekstur þess og arðsemi."

Nánari upplýsingar veitir:

Erlendur Magnússon, stjórnarformaður

s:860-3355