Kvika banki hf.: Kynning fyrir markaðsaðila 4. apríl 2019


Í tilefni af töku hlutabréfa Kviku banka hf. til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi verður haldinn opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta fimmtudaginn 4. apríl næstkomandi. Á fundinum mun Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka hf., kynna bankann og svara fyrirspurnum viðstaddra.
  
Fundurinn verður haldinn á 8. hæð í húsakynnum bankans að Borgartúni 25, 105 Reykjavík, kl. 16:00. Boðið verður uppá léttar veitingar í lok fundar.