Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn 10. apríl 2019 kl. 16:00 í salnum Gullteig B á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, 105 Reykjavík.
Framboðsfrestur til stjórnar Eikar fasteignafélags hf. rann út 3. apríl kl. 16:00. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:
- Agla Elísabet Hendriksdóttir
- Arna Harðardóttir
- Auðun Freyr Ingvarsson
- Bjarni Kristján Þorvarðarson
- Eyjólfur Árni Rafnsson
- Guðrún Bergsteinsdóttir
- Helgi Bjarnason
Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórnin skipuð fimm einstaklingum.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi. Skýrsla tilnefningarnefndar fylgir einnig með en hún var áður birt með fundarboði aðalfundar 20. mars 2019.
Viðhengi