Í mars var farþegafjöldi Icelandair 268 þúsund og jókst um 3% miðað við mars á síðasta ári. Framboð var aukið um 6%. Sætanýting var 81,2% samanborið við 81,9% í mars í fyrra. Ferðamannamarkaðurinn til Íslands var stærsti markaður félagsins í mars með 45% af heildarfarþegafjölda. Farþegum fjölgaði einnig mest á þessum markaði eða um 13% á milli ára. Komustundvísi í leiðakerfi félagsins í mars nam 77,3% og batnaði mikið eða um 4,7 prósentustig frá síðasta ári.
Farþegar Air Iceland Connect voru 23 þúsund og fækkaði um 19% á milli ára. Skýrist það aðallega af flugi til Aberdeen og Belfast sem var lagt niður í maí á síðasta ári. Sætanýting nam 68,0% og jókst um 8,1 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 13% milli ára vegna færri verkefna en á sama tíma fyrir ári. Fraktflutningar jukust um 14%. Seldar gistinætur hjá hótelum félagsins jukust um 14%. Herbergjanýting var 77,8% samanborið við 78,0% í mars 2018.
ICELANDAIR | MAR 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Farþegar til Íslands | 120.911 | 13% | 311.246 | 13% |
Farþegar frá Íslandi | 42.282 | 4% | 114.715 | 10% |
Farþegar um Ísland | 104.547 | -7% | 276.768 | -2% |
Heildarfjöldi farþega | 267.740 | 3% | 702.729 | 6% |
Sætanýting | 81,2% | -0,7 %-stig | 76,4% | -0,1 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.060,5 | 6% | 2.887,8 | 8% |
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) | 861,1 | 5% | 2.206,0 | 8% |
Meðal flugleið (KM) | 3.172 | 2% | 3.114 | 1% |
Stundvísi (komur) | 77,3% | 4,7 %-stig | 78,9% | 14,4 %-stig |
AIR ICELAND CONNECT | MAR 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 23.000 | -19% | 62.129 | -14% |
Sætanýting | 68,0% | 8,1 %-stig | 63,7% | 3,7 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 11,2 | -36% | 30,8 | -30% |
LEIGUFLUG | MAR 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,9% | -9,1 %-stig | 91,2% | -8,8 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.553 | -13% | 7.478 | -14% |
FRAKTFLUTNINGAR | MAR 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 12.000 | 14% | 32.344 | 6% |
HÓTEL | MAR 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 32.925 | 14% | 95.242 | 19% |
Seldar gistinætur | 25.612 | 14% | 70.121 | 14% |
Herbergjanýting | 77,8% | -0,2 %-stig | 73,6% | -3,8 %-stig |
Nánari upplýsingar veitir: Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group netfang: iris@icelandairgroup.is