Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 9. apríl 2019

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 9. apríl 2019 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa.

Tilboð bárust í alla flokka, samtals að nafnvirði 4.412 milljóna króna. Var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 1.361 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,35% í flokknum REITIR151244, að nafnvirði 796 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 2,65% í flokknum REITIR151124 og að nafnvirði 240 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 5,15% í flokknum REITIR 22.

Heildarstærð ofangreindra flokka verður eftirfarandi:

Flokkur:               Áður útgefið:      Eftir útgáfu nú:

REITIR151244     38.355.200.000  39.716.200.000

REITIR151124     9.450.000.000   10.246.000.000

REITIR 22             1.155.000.000   1.395.000.000

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð föstudaginn 12. apríl 2019 og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669-4416.