Breytingar á flugáætlun Icelandair


Áhrif kyrrsetningar Boeing 737 MAX flugvéla

Uppfærð flugáætlun Icelandair miðar við að Boeing 737 MAX flugvélar félagsins verði kyrrsettar til 16. júní n.k. Með þeim mótvægisaðgerðum sem gripið hefur verið til með því að bæta leiguvélum við flota félagsins hefur tekist að takmarka áhrifin á leiðarkerfið verulega. Félagið gekk frá leigu á tveimur Boeing 767 breiðþotum sem tilkynnt var um þann 1. apríl síðastliðinn. Í dag gekk félagið frá leigu á þriðju vélinni en hún er af gerðinni Boeing 757-200 og er 184 sæta. Hún verður í rekstri frá 15. maí fram í lok september 2019.

Á tímabilinu 1. apríl – 15. júní mun félagið fella niður um 3,6% af flugferðum sínum sem samsvarar rúmlega 100 ferðum á tímabilinu. Í flestum tilfellum er um að ræða flug til áfangastaða þar sem fleiri en eitt flug eru í boði sama dag. Þrátt fyrir þessar ráðstafanir helst sætaframboð félagsins nánast óbreytt þar sem notast verður við Boeing 767 flugvélar sem eru stærri en Boeing 737 MAX vélarnar. Af þeim sökum er gert ráð fyrir óverulegum áhrifum á heildarfjölda fluttra farþega á tímabilinu.

Eins og fram hefur komið, hefur Icelandair jafnframt ákveðið að hætta við flug til Cleveland í Bandaríkjunum og Halifax í Kanada á þessu ári. Það skýrist að hluta til af kyrrsetningu MAX vélanna en jafnframt hafði áhrif á ákvörðunina að stór hluti farþega á framangreinda staði eru skiptifarþegar sem eru að ferðast milli N-Ameríku og Evrópu. Ákveðið var að færa framboðið yfir á áfangastaði þar eftirspurn er meiri eftir ferðum til og frá Íslandi.

Fjárhagsleg áhrif kyrrsetningarinnar eru óviss á þessu stigi, m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda.

Aðlögun flugáætlunar að breytingum á samkeppnisumhverfi

Vegna breytinga á samkeppnisumhverfinu mun Icelandair auka við framboð sitt í flugi til Suður Evrópu frá því sem áður var ákveðið. Félagið hefur nú þegar bætt við framboði til Alicante og mun, í samstarfi við VITA, bjóða flug þangað þrisvar sinnum í viku í sumar.

Ennfremur, hefur félagið hafið vinnu sem miðar að því að bæta vélum við flugvélaflota Icelandair sem einungis eru útbúnar almennu farrými. Mun fleiri sæti verða í þessum vélum en í núverandi vélum félagsins sem lækkar kostnað á hvert framboðið sæti og styrkir þ.a.l. samkeppnishæfni félagsins á þessum markaði. Þessar vélar henta betur í flug til áfangastaða sem eru ekki hluti af kjarnaleiðarkerfi Icelandair, t.d. Alicante og Tenerife, og skapa því tækifæri til frekari vaxtar. Gert er ráð fyrir að fyrstu vélarnar með þessari uppsetningu verði komnar í rekstur í byrjun árs 2020.


Nánari upplýsingar: Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group:  email: iris@icelandairgroup.is