Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2019


Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2019, föstudaginn 3. maí 2019. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn mánudaginn 6. maí 2019 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Bogi Nils Bogason forstjóri og Eva Sóley Guðbjörnsdóttir framkvæmdastjóri fjármála munu kynna afkomu Icelandair Group og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í sal 2. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/