Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár og heildarfjöldi hluta og atkvæða

Á aðalfundi Reita fasteignafélags hf. þann 12. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 16.500.000 kr. að nafnvirði. Nam það eigin hlutafé félagsins eins og það stóð þann 18. febrúar 2019 og á aðalfundardegi og því þannig eytt.

Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú í dag verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 689.856.201 kr. en var fyrir lækkunina 706.356.201 kr. að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Í 84. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 kemur fram að ef útgefandi hækkar eða lækkar hlutafé sitt eða fjölgar eða fækkar atkvæðum skal hann, á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingarnar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Í samræmi við ofangreint tilkynnist nú að heildarfjöldi hluta og heildarfjöldi atkvæða er 689.856.201 kr. að nafnverði.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669-4416.