logo.jpg
Source: Icelandair Group hf.

Breytingar á flugáætlun vegna áframhaldandi kyrrsetningar Boeing 737 MAX flugvéla

Þann 10. apríl sl. tilkynnti Icelandair breytingar á flugáætlun sinni til að bregðast við kyrrsetningu Boeing 737 MAX flugvéla fram í miðjan júní. Útlit er fyrir að kyrrsetning vélanna muni vara lengur og hefur félagið því uppfært flugáætlun sína fram til 15.júlí.

Til þess að lágmarka áhrif kyrrsetningarinnar á farþega gekk félagið frá leigu á þremur flugvélum sem tilkynnt var um í apríl og verða þær í rekstri út septembermánuð. Um er að ræða tvær 262 sæta Boeing 767 breiðþotur og eina Boeing 757-200 vél sem er 184 sæta. Til samanburðar taka Boeing 737 MAX vélarnar 160-178 farþega í sæti.

Við þessar breytingar dregst sætaframboð tímabilsins saman um tæplega 2%. Lögð er áhersla á að tryggja sem minnst rask á mörkuðunum til og frá Íslandi.

Vinna varðandi þessar breytingar mun hefjast eftir helgi og munu þjónustufulltrúar Icelandair hafa samband við viðkomandi farþega.

Fjárhagsleg áhrif kyrrsetningarinnar eru óviss á þessu stigi, m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda.


Upplýsingar:

Markaðsaðilar: Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla. Netfang: iris@icelandairgroup.is
Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi. Netfang: asdis@icelandair.is