Í maí var farþegafjöldi Icelandair 419 þúsund og jókst um 14%. Framboð var aukið um 7%. Sætanýting var 82,5% samanborið við 77,7% í maí í fyrra. Farþegum fjölgaði á öllum mörkuðum, þó mest á markaðinum til Íslands, um 36 þúsund, eða sem nemur 33%. N-Atlantshafsmarkaðurinn var stærsti markaður félagins í mars með 50% af heildarfarþegafjölda. Aukning á þeim markaði var 4%. Farþegum á heimamarkaðinum frá Íslandi fjölgaði um 15% samanborið við fyrra ár. Komustundvísi í leiðarkerfi félagsins í maí nam 72% samanborið við 63% í maí á síðasta ári.
Farþegar Air Iceland Connect voru 25 þúsund og fækkaði um 8% á milli ára. Skýrist það aðallega af flugi til Aberdeen og Belfast sem var lagt niður í maí á síðasta ári. Sætanýting nam 69,2% og jókst um 7,2 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 12% milli ára vegna færri verkefna en á sama tíma fyrir ári og viðhalds flugvéla. Fraktflutningar jukust um 19%. Seldar gistinætur hjá hótelum félagsins jukust um 31%. Herbergjanýting var 82,9% samanborið við 72,8% í maí 2018. Aukning var á öllum hótelum félagsins bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni.
ICELANDAIR | MAÍ 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Farþegar til Íslands | 142.679 | 33% | 582.167 | 24% |
Farþegar frá Íslandi | 59.470 | 15% | 241.129 | 21% |
Farþegar um Ísland | 216.942 | 4% | 616.834 | -1% |
Fjöldi farþega | 419.091 | 14% | 1.440.130 | 11% |
Sætanýting | 82,5% | 4,8 ppt | 79,6% | 2,7 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.601,0 | 7% | 5.658,9 | 8% |
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) | 1.320,3 | 14% | 4.505,1 | 12% |
Meðal flugleið (KM) | 3.153 | -1% | 3.133 | 1% |
Stundvísi (komur) | 72,0% | 8,9 ppt | 75,0% | 8,4 ppt |
AIR ICELAND CONNECT | MAÍ 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 25.333 | -8% | 109.636 | -14% |
Sætanýting | 69,2% | 7,2 ppt | 66,0% | 5,5 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 11,8 | -24% | 53,5 | -31% |
LEIGUFLUG | MAÍ 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 18,2 ppt | 92,3% | -4,0 ppt |
Seldir blokktímar | 2.528 | -12% | 12.369 | -16% |
FRAKTFLUTNINGAR | MAÍ 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 12.713 | 19% | 56.247 | 11% |
HÓTEL | MAÍ 19 | BR. (%) | ÁTÞ 19 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 34.639 | 15% | 161.908 | 17% |
Seldar gistinætur | 28.717 | 31% | 121.005 | 17% |
Herbergjanýting | 82,9% | 10,1 ppt | 74,7% | -0,3 ppt |
Upplýsingar:
Markaðsaðilar: Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla. Netfang: iris@icelandairgroup.is
Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi. Netfang: asdis@icelandair.is