Reginn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 23 keyptu Reginn hf. 50.000 eigin hluti að kaupverði 1.137.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTími Keyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
7.6.201911:24:06  50.000 22,75  1.137.500 
Samtals    50.000    1.137.500   


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 6. júní 2019.

Reginn átti ekki eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 50.000 eigin hluti eða sem nemur 0,003% af útgefnum hlutum í félaginu.

Reginn hefur keypt samtals 50.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,003% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 1.137.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. nóvember 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262