Kvika banki hf.: Kvika banki hf. lýkur víxlaútboði


Kvika banki hf. hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki, KVB 19 1219. Í heildina bárust tilboð upp á 2.990 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.000 milljónir kr. Víxlarnir voru seldir á 4,84% flötum vöxtum og áætlað er að taka þá til viðskipta á Nasdaq Ísland á næstu vikum.