Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa


Eik fasteignafélag hf. („Eik“ eða „félagið“) efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 27. júní 2019. Boðin verða til sölu skuldabréf í tveimur nýjum skuldabréfaflokkum: EIK 050726 og EIK 050749, sem báðir eru verðtryggðir. Styttri flokkurinn, EIK 050726, er með sjö ára lánstíma og fylgir 30 ára jafngreiðsluferli. Lengri flokkurinn, EIK 050749, er með 30 ára lánstíma og fylgir 30 ára jafngreiðsluferli.

Báðir skuldabréfaflokkanir verða boðnir til sölu með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem verður tekið. Tilgangur skuldabréfaútboðsins er endurfjármögnun eldri bankalána en fjármögnun þeirrar uppgreiðslu hefur þegar verið tryggð að fullu með lánum frá fjármálastofnunum.

Íslandsbanki hefur umsjón með sölu skuldabréfanna og endurfjármögnunarferli Eikar. Fossar markaðir koma jafnframt að sölu skuldabréfanna til erlendra aðila.

Tilboðum skal skilað fyrir klukkan 16:00 á útboðsdegi, þann 27. júní 2019 til verðbréfamiðlunar Íslandsbanka á netfengið vbm@isb.is. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Frekari upplýsingar veitir:
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 590-2209 / 820-8980