Í viku 26 keyptu Reginn hf. 2.000.000 eigin hluti að kaupverði 45.000.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
25.6.2019 | 15:22:40 | 500.000 | 22,70 | 11,350,000 |
27.6.2019 | 10:18:49 | 1.000.000 | 22,50 | 22,500,000 |
28.6.2019 | 15:24:51 | 500.000 | 22,30 | 11,150,000 |
Samtals | 2.000.000 | 45.000.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 6. júní 2019.
Reginn átti 3.050.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 5.050.000 eigin hluti eða sem nemur 0,277% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt samtals 5.050.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,277% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 113.662.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. nóvember 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262