Í viku 27 keyptu Reginn hf. 2.500.000 eigin hluti að kaupverði 54.775.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
1.7.2019 | 14:17:05 | 500.000 | 22,10 | 11.050.000 |
2.7.2019 | 14:06:48 | 500.000 | 21,85 | 10.925.000 |
4.7.2019 | 10:46:27 | 1.000.000 | 21,83 | 21.825.000 |
5.7.2019 | 12:49:11 | 500.000 | 21,95 | 10.975.000 |
Samtals | 2.500.000 | 54.775.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 6. júní 2019.
Reginn átti 5.050.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 7.550.000 eigin hluti eða sem nemur 0,41% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt samtals 7.550.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,41% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 168.437.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. nóvember 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262