Reginn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 28 keyptu Reginn hf. 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 21.850.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
8.7.2019 13:29:28   500.000    21,70    10.850.000 
10.7.2019 15:02:32   500.000    22,00    11.000.000 
Samtals     1.000.000   21.850.000

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 6. júní 2019.

Reginn átti 7.550.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 8.550.000 eigin hluti eða sem nemur 0,47% af útgefnum hlutum í félaginu.

Reginn hefur keypt samtals 8.550.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,47% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 190.287.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. nóvember 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262