Nánari upplýsingar í tengslum við sölu á Icelandair Hotels og tengdra fasteigna


Vísað er í tilkynningu Icelandair Group hf., dags. 13. júlí 2019, vegna kaupa Berjaya Property Ireland Limited á 75% hlut í Icelandair Hotels og tengdum fasteignum.

Kaup- og söluréttarsamningurinn sem var undirritaður samhliða kaupsamningnum er ekki nýtanlegur fyrr en þremur árum liðnum frá viðskiptunum og verður þá nýtanlegur einu sinni á ári í þrjú ár. Verð í kaup- og söluréttarsamningnum miðar við 10 sinnum EBITDA hagnað félagsins (án IFRS 16 áhrifa) ársins á undan að frádregnum nettó vaxtaberandi skuldum þegar rétturinn er nýttur. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort og hvenær Icelandair Group hyggst nýta sér réttinn.

Eins og áður hefur verið upplýst er heildarvirði Icelandair Hotels og tengdra fasteigna 136 milljónir USD (án IFRS 16 áhrifa). Berjaya mun eignast 75% hlut í félaginu og mun endanlegt kaupverð ráðast af stöðu nettó veltufjármuna og nettó vaxtaberandi skulda á afhendingardegi. Hlutur Icelandair Group í Lindarvatni ehf., er ekki hluti af hinu selda. Kaupverðið verður greitt í áföngum með reiðufé til Icelandair Group og skal kaupverð að fullu greitt við árslok 2019 samhliða afhendingu hins selda. Samanlögð EBITDA hins selda árið 2018 var 12 milljónir USD. Kaupsamningurinn er háður ýmsum skilyrðum,  meðal annars um nauðsynleg samþykki á grundvelli laga nr. 21/1966 og endurfjármögnun hins selda. Áreiðanleikakönnun á hinu selda hefur þegar verið framkvæmd af kaupanda.

Frekari upplýsingar veita:

Fjárfestar:

Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla-  iris@icelandairgroup.is

Fjölmiðlar:

Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi - asdis@icelandair.is


Viðhengi


Attachments

Fréttatilkynning