Reginn hf. – Smáralind veitt áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna kröfu Norðurturnsins hf. um samnýtingu bílastæða við Hagasmára 1


 

Reginn hf. barst í dag ákvörðun Hæstaréttar Íslands um að beiðni félagsins, f.h. Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf., um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar 7. júní 2019, í máli nr. 647/2018: Norðurturninn hf. gegn Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf. og Kópavogsbæ, hafi verið samþykkt.

Með dómi Landsréttar var viðurkennd kvöð sem veitti Norðurturninum hf. rétt til nýtingar bílastæða á lóðinni við Hagasmára 1. Eignarhaldsfélagið Smáralind óskaði í kjölfar dómsins eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dóminum. Norðurturninn hf. lagðist gegn beiðninni en Kópavogsbær taldi að taka ætti hana til greina.

Beiðni um áfrýjunarleyfi var veitt að virtum gögnum málsins þar sem Hæstiréttur taldi að líta yrði svo á að dómur í máli þessu myndi hafa almennt gildi um stofnunarhætti kvaða. Endanleg niðurstaða málsins bíður því dóms Hæstaréttar. 

Í fyrri tilkynningum frá félaginu hefur komið fram að dómsmálið hafi óveruleg fjárhagsleg áhrif á Reginn og dótturfélög enda ekki höfð uppi fjárkrafa í málinu. Þá hefur málareksturinn ekki haft áhrif á uppbyggingaráform á svæði Smárans vestan Reykjanesbrautar (Smárabyggð).

 

Nánari upplýsingar:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262

Viðhengi


Attachments

Reginn hf. - Ákvörðun Hæstaréttar varðandi áfrýjunarleyfi til ESML - 13082019