Í viku 33 keyptu Reginn hf. 2.500.000 eigin hluti að kaupverði 53.875.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
13.8.2019 | 11:04:24 | 500.000 | 21,85 | 10.925.000 |
14.8.2019 | 11:30:36 | 500.000 | 21,75 | 10.875.000 |
14.8.2019 | 15:12:35 | 500.000 | 21,55 | 10.775.000 |
15.8.2019 | 10:20:22 | 500.000 | 21,35 | 10.675.000 |
15.8.2019 | 15:09:02 | 500.000 | 21,25 | 10.625.000 |
Samtals | 2.500.000 | 53.875.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 6. júní 2019.
Reginn átti 8.734.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 11.234.000 eigin hluti eða sem nemur 0,62% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt samtals 11.234.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,62% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 248.210.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. nóvember 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262