Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs annars ársfjórðungs 2019 þann 28. ágúst - Kynningarfundur 29. ágúst


Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs fyrir árið 2019 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. ágúst n.k.

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 29. ágúst n.k. klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.