Í viku 34 keyptu Reginn hf. 1.500.000 eigin hluti að kaupverði 31.175.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
20.8.2019 | 14:41:36 | 500.000 | 21,00 | 10.500.000 |
21.8.2019 | 10:26:14 | 200.000 | 20,80 | 4.160.000 |
21.8.2019 | 10:26:32 | 300.000 | 20,80 | 6.240.000 |
21.8.2019 | 15:29:31 | 500.000 | 20,55 | 10.275.000 |
Samtals | 1.500.000 | 31.175.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 6. júní 2019.
Reginn átti 11.234.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 12.734.000 eigin hluti eða sem nemur 0,697% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt samtals 12.734.400 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,697% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 279.385.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. nóvember 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262