Source: Reitir fasteignafélag hf.

Reitir selja Fossháls 5-11

Reitir hafa samþykkt tilboð um sölu á eignunum Fossháls 5-7 og Fossháls 9-11 í Reykjavík, samtals 2925,7 fm. Söluverð fasteignanna er 575 milljónir kr. og greiðist með reiðufé. Afhending eignanna er áætluð þann 1. október nk. að uppfylltum þeim fyrirvörum sem gerðir eru af hálfu kaupanda, en fyrirvari er gerður um fjármögnun kaupanna og áreiðanleikakönnun á fasteignunum og þeim réttindum og skyldum sem þeim fylgja. Salan mun hafa óveruleg áhrif á áætlaðan rekstrarhagnað Reita á árinu 2019. Síðustu ár hefur rekstrarhagnaður fasteignanna á ársgrundvelli verið um 20 milljónir kr. 

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660-3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416.