Kvika banki hf.: Útboð á víxlum 16. september 2019


Kvika banki hf. heldur útboð á víxlum bankans mánudaginn 16. september 2019.


Í boði eru víxlar í 6 mánaða flokknum KVB 20 0319 að nafnvirði 2.000 m. kr. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæstu samþykktu flötu vextir) ræður söluverðinu. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m. kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í kauphöll Nasdaq Iceland. Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 mánudaginn 16. september. Uppgjörsdagur er 19. september 2019.
Hægt er að hafa samband við markaðsviðskipti Kviku í síma 540-3220 eða með tölvupósti á vixlar@kvika.is til að fá nánari upplýsingar.