Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf- BÚS I lauk í dag útboði á skuldabréfum í flokknum BUS 56.
Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður, til 40 ára, með jöfnum greiðslum á föstum 3,55% ársvöxtum. Skuldabréfin fela ekki í sér bein veð en allar eignir fagfjárfestasjóðsins Landsbréf- BÚS I standa til tryggingar á greiðslu skuldabréfanna.
Boðin voru til sölu skuldabréf fyrir allt að 1.800 milljónir króna með fastri ávöxtunarkröfu 3,35%. Alls bárust 8 tilboð í skuldabréfaflokkinn að nafnvirði 2.420 milljónir króna. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.800 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 3,35%.
Heildarstærð skuldabréfaflokksins BUS 56 að sölu lokinni verður 13.640 milljónir króna að nafnvirði.
Tilgangur útgáfunnar er endurfjármögnun á hluta núverandi skulda Búseta hsf.
Gjalddagi og afhending skuldabréfanna er fyrirhuguð í viku 40-41 og sótt verður um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann sama dag og gjalddagi og afhending á sér stað. Kauphöll mun tilkynna um fyrirhugaða stækkun með eins dags fyrirvara.
Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.
Nánari upplýsingar veita:
Ingvar Karlsson, sjóðstjóri fagfjárfestasjóðsins Landsbréf - BÚS I, í síma 410-2518 eða í gegnum netfangið: ingvar.karlsson@landsbref.is
Gunnar S. Tryggvason, s: 410 6709 eða í gegnum netfang Markaðsviðskipta Landsbankans vegna útboðsins: verdbrefamidlun@landsbankinn.is