Í viku 38 keyptu Reginn hf. 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 20.525.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
16.9.2019 | 12:33:14 | 500.000 | 20,65 | 10.325.000 |
16.9.2019 | 14:55:58 | 500.000 | 20,40 | 10.200.000 |
Samtals | 1.000.000 | 20.525.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 6. júní 2019.
Reginn átti 15.236.500 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 16.236.500 eigin hluti eða sem nemur 0,89% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt samtals 16.236.500 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,89% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 352.212.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. nóvember 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262