Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár


Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hafa borist 30 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 52.516.762, um nýtingu réttindanna.

Annars vegar var ein tilkynning frá rétthafa áskriftarréttinda sem voru gefin út og seld á árinu 2016 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis III í samþykktum félagsins, þ.e. áskrift að 28.550.107 hlutum í félaginu á genginu 4,18. Hins vegar voru tilkynningar frá rétthöfum áskriftarréttinda sem voru gefin út og seld í september 2017 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV í samþykktum félagsins, þ.e. samtals áskrift að 23.966.655 hlutum í félaginu á genginu 6,18. Kaupverð hinna nýju hluta nemur samtals kr. 267.453.376.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 131/1997 um rafræna eignaskráningu verðbréfa.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæðum III og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 52.516.762 og mun eftir hækkun standa í kr. 1.927.449.104 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta. Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis III hefur nú verið felld niður þar sem engin útistandandi áskriftarréttindi eru lengur samkvæmt ákvæðinu. Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV mun í kjölfar hækkunar vera 606.033.345 kr. að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september s.l.