Í viku 40 keyptu Reginn hf. 693.173 eigin hluti að kaupverði 13.482.215 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
30.9.2019 | 09:33:49 | 693.173 | 19,45 | 13.482.215 |
Samtals | 693.173 | 13.482.215 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 6. júní 2019.
Reginn átti 21.236.652 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 21.929.825 eigin hluti eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið. Reginn hefur keypt samtals 21.929.825 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 467.422.300 kr. Reginn á samtals 1,20% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.826.243.956. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 500.000.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262