Eik fasteignafélag hf. („Eik" eða „félagið“) hefur nú lokið sölu á skuldabréfaflokkunum EIK 050726 og EIK 050749. Heildareftirspurn nam samtals 2.880 milljónum króna að nafnvirði í báða flokkana.
Í skuldabréfaflokknum EIK 050726 var ákveðið að taka tilboðum að nafnverði 100 milljónum króna á ávöxtunarkröfunni 2,73% og í skuldabréfaflokknum EIK 050749 var ákveðið að taka tilboðum að nafnverði 1.200 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 3,10%.
Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þann 15. október næstkomandi.
Íslandsbanki var umsjónaraðili útboðsins.
Nánari upplýsingar veita:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s: 590-2209 / 820-8980