Arion banki birtir afkomu þriðja ársfjórðungs 2019 miðvikudaginn 30. október


Arion banki birtir afkomu þriðja ársfjórðungs 2019 miðvikudaginn 30. október næstkomandi eftir lokun markaða.

Fundur / Streymi fyrir markaðsaðila 31. október kl. 8:30

Haldinn verður fundur fyrir markaðsaðila föstudaginn 31. október klukkan 8:30 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Eggert Teitsson, aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálasviðs og Theodór Friðbertsson, forstöðumaður fjárfestatengsla, munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þátttakenda. Fundurinn fer fram á ensku í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, og verður streymt beint.

Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér.

Þeir sem vilja hringja inn á fundinn og taka þannig þátt með því að leggja fram spurningar þurfa að hringja inn áður en kynningin hefst, sjá eftirfarandi símanúmer:

Ísland: 800 7508

Svíþjóð: 46 850 558 356

Bretland: 44 33 3300 9270

Bandaríkin: 1 83 3823 0587

Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans www.arionbanki.is/IR .

Nánari upplýsingar veita Theodór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, IR@arionbanki.is, s.444 6760 og Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs bankans, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.