Í viku 43 keypti Kvika 3.656.546 eigin hluti að kaupverði 34.409.631 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
23.10.2019 | 14:57:46 | 136.666 | 9,42 | 1.287.394 |
24.10.2019 | 11:41:57 | 1.768.235 | 9,42 | 16.656.774 |
25.10.2019 | 10:11:30 | 1.751.645 | 9,4 | 16.465.463 |
Samtals | 3.656.546 | 34.409.631 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. október sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 14. mars 2019.
Kvika átti enga eigin hluti fyrir viðskiptin en hefur keypt samtals 3.656.546 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,19% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 34.409.631 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,6% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 21. október 2019 til og með 14. febrúar 2020, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.