Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2019 þann 31. október - Kynningarfundur 1. nóvember


Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs fyrir árið 2019 eftir lokun markaða fimmtudaginn 31. október n.k.

Opinn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 1. nóvember n.k. klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.