Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023


Fréttatilkynning:

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020:

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2020 var lögð fram í bæjarráði í dag. Rekstrarafkoma A- og B-hluta er áætluð jákvæð um 309,5 milljón krónur eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2021-2023.

Skatttekjur samstæðu eru áætlaðar 12.865 millj.kr, tekjur frá jöfnunarsjóði 3.862 millj.kr. og aðrar tekjur 11.198 millj.kr.  Heildartekjur samstæðunnar eru því áætlaðar 27.925 millj.kr.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema 3.024 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar nema samtals 4.443 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar munu nema samtals 969 millj.kr. Áætlað er að afborganir langtímalána nemi 1.034 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 2.005 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok er áætlað 2.477 millj.kr.

Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 16.099 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 57,7%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 28,6% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins og tekjur frá jöfnunarsjóði eru áætlaðar 867 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.447 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2019, skv. Útkomuspá, eru skatttekjurnar ásamt jöfnunarsjóði áætlaðar 825 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.388 þús.kr.

Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12.2020 verði bókfærðar á 58.582 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 5.184 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nemi þá samkvæmt efnahagsreikningi 33.506 millj.kr., þar af verði skammtímaskuldir 4.342 millj.kr. Áætlað er að heildareignir á hvern íbúa muni nema 3.035 þús.kr. og skuldir 1.466 þús.kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 1,19 í árslok 2020, en er áætlað 1,38 í árslok 2019. Bókfært eigið fé er áætlað að nemi 25.076 millj.kr í árslok 2020. Eiginfjárhlutfall í árslok er áætlað að nemi 43%.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hún til fyrri umræðu  í bæjarstjórn Akureyrar þriðjudaginn 5. nóvember og til síðari umræðu þann 3. desember nk.

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir,  Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrarbæjar, Hafnasamlag Norðurlands, Norðurorka hf.,  Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2020, samstæðan ásamt A-hluta, málaflokkayfirliti, framkvæmdayfirliti og áætlun fyrir einstök fyrirtæki. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2020 er birt í frumvarpinu þriggja ára áætlun vegna áranna 2020-2023 ásamt útkomuspá fyrir árið 2019 og rauntölur vegna ársins 2018

Akureyri, 31. október  2019.
Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs, í síma 460 1000.

Viðhengi


Attachments

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023 - fyrri umræða(2)