Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Regins og Smáralindar. Sturla G. Eðvarðsson hefur óskað eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Smáralindar og hefur verið gert samkomulag um starfslok hans. Samhliða hættir Sturla í framkvæmdastjórn Regins. Sturla hefur starfað sem framkvæmdastjóri Smáralindar frá 2010 og leitt félagið í gegnum mikla umbreytingartíma með góðum árangri. Sturla lætur af störfum frá og með 1. nóvember 2019.
Reginn þakkar Sturlu fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar.
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262