Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 31. október tilkynnti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 17.416.663 í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 1.944.865.767 að nafnvirði.

Nýju hlutirnir hafa verið gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað hefur verið eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.