Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 44 keypti Kvika 3.604.883 eigin hluti að kaupverði 33.767.900 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
28.10.201910:07:401.904.8839,417.905.900
30.10.201914:49:31100.0009,5950.000
31.10.201910:31:581.600.0009,3214.912.000
Samtals 3.604.883 33.767.900

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. október sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 14. mars 2019.

Kvika átti 3.656.546 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 7.261.429 eigin hluti. Allir eigin hlutir voru keyptir samkvæmt áætluninni. Frá síðustu reglubundnu tilkynningu um endurkaup hefur hlutafé félagsins verið hækkað, sbr. tilkynning þann 1. nóvember sl., og stendur í dag í kr. 1.944.865.767 að nafnvirði. Eigin hlutir félagsins nema samkvæmt því 0,37% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 68.177.531 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,6% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 21. október 2019 til og með 14. febrúar 2020, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.