Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR 22

Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR 22. Flokkurinn er óverðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn ber 5,75% fasta ársvexti og er með eina afborgun höfuðstóls eftir 3 ár og vaxtagreiðslur á líftíma flokksins.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.000.000.000 króna á ávöxtunarkröfunni 4,60% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 2.395.000.000 krónur.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna mánudaginn 11. nóvember nk. og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Fossar markaðir höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna, útgáfu þeirra og töku til viðskipta.

Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669-4416, og Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími: 522-4008.