Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 45 keypti Kvika 10.582.356 eigin hluti að kaupverði 110.591.109 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
4.11.201914:39:121.784.41710,1518.111.833
5.11.20199:53:142.000.00010,2520.500.000
6.11.20199:34:131.000.00010,2510.250.000
6.11.20199:42:491.000.00010,2510.250.000
7.11.20199:34:582.256.43410,6524.031.022
8.11.20199:48:082.541.50510,827.448.254
Samtals 10.582.356 110.591.109

Kvika átti 7.261.429 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 17.843.785 eigin hluti. Allir eigin hlutir voru keyptir samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,92% af útgefnum hlutum. Nemur heildarkaupverð þeirra 178.768.640 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,6% af útgefnum hlutum í félaginu.Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. október sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 14. mars 2019.

Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 21. október 2019 til og með 14. febrúar 2020, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.