Á stjórnarfundi þann 14. nóvember 2019 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutareikning samstæðu Kviku banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar 2019 til 30. september 2019.
Góð afkoma á fyrstu níu mánuðum ársins
- Hagnaður fyrir skatta nam 1.996 milljónum króna
- Hagnaður eftir skatta nam 1.913 milljónum króna
- Arðsemi eiginfjár var 20,3%
- Hreinar rekstrartekjur námu 5.615 milljónum króna
- Rekstrarkostnaður nam 3.899 milljónum króna
- Heildareignir námu 112,6 milljörðum króna
- Eigið fé samstæðunnar nam 14,8 milljörðum króna
- Eiginfjárhlutfall í lok september var 22,9% en 23,6% að teknu tilliti til hagnaðar á fjórðungnum
- Lausafjárþekja (LCR) var 260%
- Heildareignir í stýringu námu 417 milljörðum króna
- Starfsmenn í fullu starfi voru 122 í lok september
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, föstudaginn 15. nóvember kl. 8:30.
Góð arðsemi og aukning í öllum tekjustofnum
Hagnaður Kviku fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins 2019 nam 1.996 milljónum króna, samanborið við 1.444 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2018 og jókst um 38%. Hagnaður eftir skatta nam 1.913 milljónum króna samanborið við 1.403 milljónir á fyrstu níu mánuðum ársins 2018. Arðsemi bankans var 20,3%, vel umfram langtímamarkmið bankans um 15% arðsemi.
Aukning var í öllum tekjustofnum bankans frá sama tímabili árið 2018. Hreinar vaxtatekjur jukust um 7%, hreinar þóknanatekjur jukust um 30% og fjárfestingatekjur jukust um 51%.
Rekstrarkostnaður jókst um 34% vegna aukinna umsvifa á árinu og er í samræmi við áætlun.
Afkomuáætlun Kviku gerir ráð fyrir að hagnaður á árinu verði á bilinu 2.500 – 2.800 milljónir króna fyrir skatta. Í upphafi árs var afkomuspá bankans 1.990 milljónir króna fyrir skatta en hefur verið breytt þrisvar síðan.
Marinó Örn Tryggvason forstjóri Kviku:
,,Rekstur Kviku gekk vel á fyrstu níu mánuðum ársins. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig reksturinn gekk á þriðja ársfjórðungi þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður. Tekjumyndun bankans hefur verið góð það sem af er ári og vel hefur gengið að halda rekstrarkostnaði á áætlun. Arðsemin er góð og vel umfram langtímamarkmið bankans.
GAMMA hefur verið hluti af samstæðu Kviku frá því í mars. Í lok september var tilkynnt um um slæma stöðu á tveimur sjóðum í rekstri GAMMA. Staða þessara sjóða olli okkur vonbrigðum en bankinn hefur lagt áherslu á að styðja GAMMA í því að gæta hagsmuna eigenda sjóðanna og hámarka verðmæti eigna þeirra.
Á árinu hefur verið ánægjulegt að sjá viðtökur við Auði og áhrifum hennar á samkeppni á innlánamarkaði. Þetta er gott dæmi um hvernig bankaþjónusta er að breytast. Mikil tækifæri felast í að taka þátt í þeim breytingum og möguleikum sem eru til staðar til að halda áfram að bæta kjör viðskiptavina.“
Viðhengi