Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár


Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hafa síðan á síðasta stjórnarfundi borist 13 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 32.033.333 kr., um nýtingu réttindanna.

Þær tilkynningar sem borist hafa eru vegna áskriftarréttinda sem gefin voru út og seld í september 2017 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV í samþykktum félagsins. Framangreint felur í sér nýtingu að áskriftarréttindum að samtals 32.033.333 nýjum hlutum á genginu 6,25. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 200.208.331.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 131/1997 um rafræna eignaskráningu verðbréfa.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 32.033.333 og mun eftir hækkun standa í kr. 1.976.899.100 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta. Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV mun í kjölfar hækkunar vera 556.583.349 kr. að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september s.l.

Þrír þeirra aðila sem nýtingin varðar teljast til stjórnenda félagsins í skilningi 3. mgr. 127. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 eða eru fjárhagslega tengdir stjórnendum félagsins. Er þar af leiðandi um að ræða viðskipti sem félaginu ber að birta opinberlega skv. 1. mgr. sömu gr. Þann 8. nóvember sl. var tilkynnt um viðskipti tveggja þeirra og verður sérstök tilkynning vegna viðskipta þess þriðja birt samhliða þessari tilkynningu.