Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 14. nóvember tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 32.033.333 í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.
Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 1.976.899.100 að nafnvirði.

Óskað verður eftir því að nýju hlutirnir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.