Niðurstaða hluthafafundar Símans hf. sem haldinn var fimmtudaginn 21. nóvember 2019 kl. 10. í höfuðstöðvum félagsins.
- Tillaga um að afturkalla umboð stjórnarmanna, sbr. 1. mgr. 64. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
Tillagan var samþykkt.
- Stjórnarkjör skv. grein 15.1 í samþykktum félagsins.
Eftirtaldir aðilar voru kjörnir í stjórn félagsins:
Bjarni Þorvarðarson
Helga Valfells
Jón Sigurðsson
Kolbeinn Árnason
Sylvía Kristín Ólafsdóttir
Þeir fimm aðilar sem flest atkvæði fengu teljast réttkjörnir til stjórnarsetu í Símanum hf. til næsta aðalfundar.
- Staðfesting á ákvörðun aðalfundar dags. 21. mars 2019 varðandi stjórnarkjör og breytingar á viðauka við samþykktir.
Ákvarðanir aðalfundar 21. mars 2019 voru staðfestar.
Ekki voru fleiri mál á dagskrá fundarins.