Í viku 47 keypti Kvika 14.761.941 eigin hluti að kaupverði 153.560.655 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
18.11.2019 | 12:08:10 | 2.000.000 | 10,75 | 21.500.000 |
18.11.2019 | 12:43:54 | 821.814 | 10,75 | 8.834.501 |
19.11.2019 | 09:30:09 | 2.825.836 | 10,75 | 30.377.737 |
20.11.2019 | 09:30:12 | 2.770.284 | 10,55 | 29.226.496 |
21.11.2019 | 09:34:18 | 3.133.506 | 10,14 | 31.773.751 |
22.11.2019 | 09:31:49 | 3.210.501 | 9,92 | 31.848.170 |
Samtals | 14.761.941 | 153.560.655 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. október sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 14. mars 2019.
Kvika átti 30.997.544 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 45.759.485 eigin hluti. Allir eigin hlutir voru keyptir samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,31% af útgefnum hlutum. Nemur heildarkaupverð þeirra 476.472.367 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 21. október 2019 til og með 14. febrúar 2020, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.